Bill Gates: Vísindamaður? Bjargvættur? Eða bara ókjörinn heimsstjórnandi?

Er það virkilega talið samsæriskenning að spyrja hvernig tölvufræðingur hafi orðið áhrifamesta rödd heims í bóluefnum, loftslagsmálum, matvælaframleiðslu og samfélagsstefnu?

Bill Gates byrjaði sem hugbúnaðarsnillingur og kapítalisti. Í dag er hann stærsti landeigandi Bandaríkjanna, helsti fjárfestir í bóluefnaframleiðslu, áhrifamikill stuðningsmaður „kjötlausrar“ framtíðar og reglulegur ræðumaður hjá World Economic Forum. Hvernig gerðist þetta – og hvers vegna spyr enginn?

„Við þurfum að fækka fólki... með bóluefnum“

Á ráðstefnu árið 2010 sagði Gates berum orðum að mannkyninu þyrfti að fækka, og að bóluefni gætu gegnt hlutverki í því. „Ef við gerum virkilega gott starf með ný bóluefni, heilbrigðisþjónustu og frjósemisþjónustu, þá getum við hugsanlega lækkað fólksfjöldann um 10-15%.“ Þetta er ekki samsæri, þetta er bein tilvitnun.

Og viti menn, áratug síðar kemur (svokallaður heimsfaraldur) og hver er þá mættur í öll viðtöl, með fjárfestingar í lyfjafyrirtækjum og með ráðandi aðgang að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO)? Sá hinn sami.

Hvers vegna vill hann að við borðum pöddur?

Gates hefur fjárfest í „alternatívum próteinum“ og er meðlimur í hóp sem vill minnka neyslu rauðs kjöts. Hann kennir kúm um loftlagsvána – vegna þess að þær prumpa metani. Lausnin? Ekki að efla vistvænan búskap, heldur að við borðum skordýr og gervikjöt sem framleitt er á rannsóknarstofum.

Spurningin er einföld: Hvers vegna vill sá valdamesti í matvælaframleiðslu heims breyta því sem við borðum – nema það snúist um völd og pening?

Af hverju er tölvumaður orðinn stærsti landeigandi Bandaríkjanna?

Gates á nú yfir 240.000 ekrur af ræktarlandi í Bandaríkjunum. Hann segist ekki ætla að „stjórna neinu með því“, en á sama tíma fjármagnar hann samtök sem vilja breyta því hvað við borðum og hvernig matvælaframleiðsla virkar.

Hvernig er þetta ekki hagsmunaárekstur? Hverjar verða afleiðingarnar þegar sá sem á landið, tæknina, fræin og markaðinn – er líka sá sem skilgreinir vandamálin og vill stjórna því sem við borðum?

Tengsl við WEF – og hina „nýju heimsmynd“

Gates er ekki einangraður auðmaður. Hann er lykilgestur á fundum WEF í Davos, þar sem helstu markmið eru:

  • Global health governance (í gegnum WHO)
  • Matvælaumbreyting (frá búskap til próteintækni)
  • Population management (með forsendum "sjálfbærrar þróunar")
  • Og auðvitað: You will own nothing, and be happy 

Fyrirtæki hans, samtök og stofnanir fá fjármögnun, völd og aðgang sem lýðræðislega kjörnir fulltrúar fá sjaldan. Þetta er valdapýramídi – og hann situr ofarlega á honum.

Finnst fólki þetta ekkert skrýtið?

  • Hvers vegna er spurt um hagsmunatengsl þegar þingmenn eiga hlut t.d. í Marel – en ekki þegar auðmaður með engin lýðræðisleg umboð stjórnar alþjóðlegri stefnu í lýðheilsu, matvælaframleiðslu og landnýtingu?
  • Hvers vegna má ekki ræða þessi mál án þess að vera stimplaður sem samsæriskenningasmiður?
  • Hvernig stendur á því að sá sem boðar að við þurfum að borða pöddur, draga úr fólksfjölda og hætta kjötneyslu – býr á sveitasetri, flýgur um á einkaþotu og græðir á gervilausnum sem við eigum að kyngja – bókstaflega. Hvernig getur nokkur trúað því að þetta sé gert af góðmennsku?

Því spyr ég aftur, finnst engum þetta skrýtið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gídeon@Áhugavert!

tvö áhuga verð myndbönd eða stuttar heildamyndir á kla.tv/is

www.kla.tv/17475

www.kla.tv/20155

fannst þetta frábært

Gídeon@Áhugavert!, 22.7.2025 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hvers vegna spyr enginn af hverju?

Höfundur

Arnar Freyr Reynisson
Arnar Freyr Reynisson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.9.): 74
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 500
  • Frá upphafi: 8697

Annað

  • Innlit í dag: 43
  • Innlit sl. viku: 395
  • Gestir í dag: 43
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband