Þegar biskup boðar annan guð – Áminning til Þjóðkirkjunnar

Biskup Íslands hefur kynnt nýja handbók þar sem Guð er kvengerður, talað er um „öll kyn“ og óður til Allah birtur á arabísku í sálmabók kirkjunnar. Þetta eru ekki saklausar breytingar, heldur róttæk afneitun á kristinni arfleifð, ritningunni og þeirri trú sem hefur mótað íslenskt samfélag í meira en þúsund ár.

Guð er hvorki karl né kona í mannlegum skilningi, en Guð hefur opinberað sig á tiltekinn hátt í ritningunni. Jesús kom í líkama karls. Guð er kallaður faðir, ekki móðir. Slík orð eru ekki tilviljun heldur kenningarleg sannfæring sem hefur staðist tímans tönn og veitt trúföstum von, skýrleika og sjálfsmynd í gegnum aldirnar. Að breyta því til að falla að tískustraumi kynjapólitískrar hugmyndafræði er ekki framþróun, heldur sjálfhverf uppreisn gegn heilagri arfleifð sem hefur staðið af sér heimsveldi, styrjaldir og byltingar. Það er hrokafull vanvirðing að setja sig á það háan hest og endurskilgreina kristna trú út frá eigin tímabundnum réttlætiskenndum, sérstaklega þegar hún sjálf er aðeins brotabrot í samhengi þeirrar djúpu og víðfeðmu reynslu sem kristin trú hefur verið undirstaða siðmenningar, samfélaga og siðferðilegrar sjálfsmyndar Vesturlanda. Slíkt er ekki hugrekki. Það er afneitun klædd í orðskrúð mennskrar dýrðar, þegar það sem raunverulega er þörf á, er auðmýkt gagnvart heilögum sannleika og virðing fyrir því sem Guð hefur opinberað.

Þá er rétt að minna á að hlutverk biskups er að boða orð Guðs af trúmennsku, ekki að móta það eftir eigin reynsluheimi eða persónulegum aðstæðum. Að eiga transbarn er mannleg og djúpstæð lífsreynsla sem krefst umhyggju, hlýju og bænagangs, en hún má aldrei verða grundvöllur þess að sníða kenningar kirkjunnar eftir eigin vilja eða breyta guðsmyndinni út frá tilfinningalegum tengslum. Trú byggir á opinberun – ekki á skynjun, ekki á tíðaranda. Samkennd er ekki boðvald yfir sannleikanum, og persónuleg tengsl mega aldrei vega þyngra en heilög ritning. Biskup Íslands verður að sýna trúnni virðingu með því að varðveita hana, ekki að umbreyta henni í eigin mynd. Að rugla saman kærleika og kenningarlegri afneitun er að villast frá köllun embættisins.

Og hvað gerir óður til Allah í sálmabók Þjóðkirkjunnar? Trú múslima hafnar guðdómi Krists, þrenningunni og krossfestingunni og dregur þannig í efa sjálfan kjarna kristinnar trúar. Að setja slíkt í kristna helgibók er ekki virðing heldur sjálfsafneitun. Þetta er ekki sameining, þetta er trúarlegt undanhald, þar sem kirkjan gengur frá eigin játningu til að þóknast fjölmenningarlegum þrýstingi.

Kirkjan lifði af Rómarveldi. Hún lifði af lýðveldi, einveldi og tækniöld. En hún mun ekki lifa af ef hún, með biskup sinn í fararbroddi, afneitar eigin grunni, kennslu Krists og sannindum ritningarinnar í skiptum fyrir hylli samtímans hjá litlum hópi. Slíkt er ekki merki um nútímavæðingu, heldur undanhald og vanvirðingu við helgan boðskap. Biskup Íslands ber ekki eingöngu ábyrgð gagnvart samtímanum, heldur einnig gagnvart Guði og hinum heilögu játningum kirkjunnar. Að sýna trúnni virðingu þýðir ekki að endurskrifa hana heldur að varðveita hana af trúmennsku. Að hlýða, ekki að breyta. Að standa vörð, ekki að víkja undan. Þegar kirkjan gleymir hverrar trúar hún er, þá slokknar ljós hennar og eftir stendur skugginn einn.

Biskup Íslands ætti að staldra við þessi orð postulans:

„Leita ég nú hylli manna eða Guðs? Eða er ég að þóknast mönnum? Ef ég væri enn að reyna að þóknast mönnum, væri ég ekki þjónn Krists.“ (Galatabréfið 1:10)


mbl.is Varar við boðun villutrúar biskups
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Biskup Íslands er ekki Kristinnar trúar! Villist ekki!

Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera. Sá sem sáir í hold sjálfs sín, mun af holdinu uppskera glötun, en sá sem sáir í Andann, mun af Andanum uppskera eilíft líf.

Þreytumst ekki að gjöra það sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér gefumst ekki upp.

Þess vegna skulum vér, meðan tími er til, gjöra öllum gott og einkum trúbræðrum vorum (framar múslimum).

Sjáið, með hversu stórum stöfum ég skrifa yður með eigin hendi.

Allir þeir, sem vilja líta vel út að holdinu til, það eru þeir, sem eru að þröngva yður til að láta umskerast (af woke), einungis til þess að þeir verði eigi ofsóttir vegna kross Krists. (Gal. 6:7-12).

Jesús sagði: Mun Mannssonurinn finna trúna á jörðu, þegar Hann kemur? (Lúk. 18:8).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 16.6.2025 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Hvers vegna spyr enginn af hverju?

Höfundur

Arnar Freyr Reynisson
Arnar Freyr Reynisson

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 115
  • Sl. sólarhring: 118
  • Sl. viku: 656
  • Frá upphafi: 3183

Annað

  • Innlit í dag: 86
  • Innlit sl. viku: 487
  • Gestir í dag: 78
  • IP-tölur í dag: 74

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband