Fimmtudagur, 11. september 2025
Frétt eða áróður?
Ungur tveggja barna faðir var skotinn til bana í gær, á sviði í Utah fyrir framan þúsundir áhorfenda. Nafn hans var Charlie Kirk. Harmleikur, sama hvaða skoðanir menn kunna að hafa haft á honum. En hvernig fjalla íslenskir fjölmiðlar um þetta?
Vísir birtir grein sem ber yfirskriftina Hver var Charlie Kirk? en í stað þess að gefa lesendum raunhæfa mynd af manni sem hafði mikil áhrif á milljónir ungra kjósenda í Bandaríkjunum, er textinn nýttur sem pólitískt áróðursvopn.
Það sem stendur eftir er ekki lýsing á manneskju, lífshlaupi hennar eða þeirri spurningu af hverju svona margir litu upp til hans. Nei það sem stendur eftir er löng upptalning á samsæriskenningum, ósannindum, rasískum skoðunum og öllu því sem höfundur vill hengja á hann. Engar frumheimildir, engar tilvitnanir í samhengi aðeins gildishlaðinn texti sem dregur upp eins neikvæða mynd og hægt er.
Það er ekki hlutverk fjölmiðla að elska eða hata þá sem þeir fjalla um. En það er hlutverk þeirra að reyna að setja atburði í samhengi. Í þessu tilfelli hefði verið eðlilegt að spyrja:
- Hvers vegna tókst Kirk að byggja upp eitt stærsta ungliðanet í bandarískum stjórnmálum?
- Hvað var það í hans boðskap sem laðaði að sér milljónir ungra kjósenda?
- Hvernig náði hann að verða einn áhrifamesti álitsgjafi íhaldsmanna í Bandaríkjunum, aðeins þrítugur?
Þessar spurningar eru ekki spurðar. Þess í stað er dauði hans notaður til að ýta undir ákveðna pólitíska mynd: að sá sem hefur kristin- og fjölskyldu gildi, trú á hefðir og stendur með Trump sé í grunninn öfgamaður og hættulegur.
Væri sama nálgun notuð um vinstri leiðtoga? Getum við ímyndað okkur að ef ungur umhverfisleiðtogi, t.d Greta Thunberg hefði verið myrt, væri minningargreinin römmuð inn með upptalningu á öllu því sem hún hefði sagt sem hægt væri að túlka sem villandi eða öfgakennt? Við vitum svarið.
Þessi tvöfalda siðferðiskrafa, þessi skrumskæling er ástæðan fyrir vantrausti á fjölmiðlum. Fólk sér í gegnum þetta. Það veit að þegar dauði manns er ekki notaður til að sýna siðferði, samvisku og mannlega hlið, heldur sem tækifæri til að hnýta í pólitíska óvini, þá erum við ekki að lesa frétt heldur áróður.
https://www.visir.is/g/20252774102d/hver-var-charli-e-kirk-?fbclid=IwY2xjawMvoU5leHRuA2FlbQIxMABicmlkETA2NEJ1UzRHTFpxcVR5anJIAR7GZ0kaAi8tNz_gwcHchVuo4VNN-RbkePECfsaVoVZ7310KybfGtZZplekQCg_aem_0134D_s0SMUuVawbOTDfuQ
Bloggfærslur 11. september 2025
Um bloggið
Hvers vegna spyr enginn af hverju?
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 187
- Sl. sólarhring: 257
- Sl. viku: 652
- Frá upphafi: 9000
Annað
- Innlit í dag: 144
- Innlit sl. viku: 500
- Gestir í dag: 126
- IP-tölur í dag: 120
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar