Þriðjudagur, 29. júlí 2025
Trump lyftir teppinu og finnur Evrópu á hnjánum
Það sem átti að vera jafnvægi og samstarf reyndist í reynd neyðarlína fyrir Evrópusambandið. Samkomulagið sem undirritað var nýlega milli Trump og ESB er ekki viðskiptasamningur. Þetta var björgunarpakki. Dulbúinn sem díll.
- Þeir kölluðu hann heimskan.
- Þeir hlógu að viðvörunum hans.
- Þeir töldu hann ógn við lýðveldi og heimsbyggðina.
En þegar Donald Trump mætti aftur til leiks með kjölfestu, skýrleika og skjöl í höndunum sem fólu í sér kröfur, tölur og raunhæfa sýn þá mætti hann Evrópu sem hafði misst tökin á eigin stefnu. Hún hafði varið árum í að tala sig frá vandanum, með nefndum, ályktunum og myndatökum, en þegar kom að kjarnanum, átti hún ekkert svar. Í stað þess að mæta að borðinu með raunverulega stöðu og skýra stefnu ákvað hún að draga andann og vona að stormurinn gengi yfir.
Evrópusambandið í kreppu
Þetta snýst ekki bara um einn samning. Þetta snýst um stærra mynstur: Evrópa stendur veikari en hún hefur verið í áratugi, bæði efnahagslega og pólítískt.
- Þýskaland er að afiðnvæðast (de-industrializing), orkukerfi þess ónýtt eftir oftrú á græna umbreytingu.
- Frakkland stendur í innanlandsóeirðum og valdaóreiðu.
- Ítalía og Spánn halda sér á floti á skuldadælu ESB.
- Úkráínustríðið hefur tæmt sjóði og skapað war fatigue meðal almennings.
- Ungverjaland og Pólland standa í vaxandi andstöðu við kjarnavald ESB á meðan evrópsk fjölmiðlaelíta reynir að þagga niður gagnrýna umræðu.
- Evrópa stendur einnig frammi fyrir vaxandi innflytjenda- og hælisleitendavanda sem hefur skapað félagslega spennu, öryggisógnanir og pólitískan klofning innan aðildarríkjanna. Þetta er kerfislægur vandi sem ESB virðist hvorki viljað né þorað að takast á við af einlægni og heiðarleika.
Við þetta bætist sá staðreyndalegi vandi að evrópsk landsframleiðsla hefur dregist sífellt meira aftur úr bæði Bandaríkjunum og Japan frá fjármálakreppunni 2008. Hagvöxtur er veikburða, nýsköpun er takmörkuð, og fjárfestingar hafa dregist saman. Evrópa er að missa slagkraftinn. Löndin leita úrræða. Og Trump vissi nákvæmlega hvernig hann gæti nýtt sér það.
Samningur sem minnir á skilmála neyðarláns
Í stað jafnræðis og gagnkvæms ávinnings segir sagan nú að ESB hafi samþykkt:
- 15% tolla á eigin útflutning til Bandaríkjanna
- 0% tolla á innflutning frá Bandaríkjunum
- Skuldbindingu um hundruð milljarða dollara í bandarísku gasi og vopnum
Þetta er ekki samningur. Þetta er uppgjöf.
ESB fékk líf. Trump fékk vald. Bandaríkin fengu borgað.
Nokkur orð sem segja allt: Samkomulagið var ekki um jafnrétti eða samstarf heldur um vald, nauðsyn og þögn.
Ekki vinaleg samvinna heldur vald í verki
Trump mætti ekki með bros á vör, ekki tilbúinn í ljósmyndatökur eða innantómar fundayfirlýsingar. Hann kom með þrýsting, kaldan vilja og skýr skilaboð: annaðhvort samþykkir Evrópa nýja leikreglur, eða hún borgar verðið. Hann hótaði 100% tollum á evrópska bíla, stál og lúxusvörur.
Brussel hélt að hún gæti slegið fram gamalkunnum frösum og hótunum um samstarf við Kína.
Trump sá í gegnum leikritið og vann.
Þetta er ekki bara The Art of the Deal.
Þetta er The Art of Leverage.
Orka, vopn og vald
Trump hafði fyrir löngu skilið grunnregluna:
Ef þú stjórnar eldsneyti og vörnum Evrópu þá þarftu ekki að sannfæra neinn. Þú einfaldlega setur skilmálana.
Og:
- Hann braut niður tilraunir ESB til að mynda sjálfstæða orkublokk
- Hann færði hergagnaframleiðslu aftur til Bandaríkjanna
- Hann setti NATO aftur undir bandaríska stjórn með fjárhagslegum þrýstingi
- Hann útilokaði að ESB gæti leitað til Rússlands eða Kína í örvæntingu nema með dýru verði
Af hverju lét ESB undan??
Hvers vegna myndi ESB samþykkja samning sem lítur svona ósanngjarn út á pappír?
- Vegna þess að raunveruleikinn hefur aldrei passað við málflutninginn í Brussel.
- Vegna þess að yfirbygging ESB byggir á úreltum tálsýnum, hugmyndum um samstöðu, stöðugleika og framfarir sem hljóma vel í stefnuyfirlýsingum, ljósmyndum og myndböndum frá leiðtogafundum, en sem brotna niður þegar mætt er raunverulegum aðstæðum innan aðildarríkjanna, þar sem orka, öryggi og hagsmunir ráða för.
- Vegna þess að á meðan ESB var fast í eigin orðræðu, reglugerðum og sjálfsblekkingu, þá þorði Donald Trump, með öllum sínum kostum og göllum, að horfast í augu við staðreyndir sem aðrir vildu hvorki nefna né viðurkenna. Hann greindi valdahlutföllin, rakti hagsmunina og sagðist ætla að láta reyna á það. Þar sem Evrópa talaði í hringi, talaði hann beint.
Samningslok
Þetta er ekki samningur. Þetta er í reynd neyðarhönd sem enginn vildi viðurkenna.
Og þegar gamaldags lýðræðisvél Evrópusambandsins hikstaði í vantrú og ótta þá voru það ekki Von der Leyen eða Macron sem réðu för.
Heldur Trump.
Og þegar saga þessa tímabils verður skrifuð, mun koma í ljós:
Ekki aðeins að Trump var umdeildur heldur að hann las leikborðið rétt þegar aðrir litu undan.
Á meðan ESB forðaðist að horfast í augu við eigin vandamál og faldi sig á bak við nefndir, ljósmyndir og glaðlegar fundayfirlýsingar, eins og til dæmis leiðtogafundi þar sem enginn vildi ræða orkuskort eða skuldaþróun, heldur aðeins sameiginlega sýn til 2050 og innantóm slagorð, greindi Trump veikleikann og beitti þeirri innsýn með óvenjulegum árangri.
![]() |
Donald Trump át von der Leyen í morgunmat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. júlí 2025
Í skjóli þagnar og lyga Hvernig ríkisstjórnin svíkur þjóðina
Á meðan almenningur horfir á efnahagsáhyggjur, húsnæðisvanda og sívaxandi byrðar, er ríkisstjórn Íslands að grafa undan fullveldi landsins, í kyrrþey, bak við luktar dyr, undir yfirskini "samráðs" og "alþjóðlegrar ábyrgðar". Undanfarna mánuði hafa ráðherrar í ríkisstjórninni, aðallega utanríkisráðherra, tekið þátt í undirritun alþjóðlegra skuldbindinga sem marka afgerandi stefnumótun í utanríkis- og öryggismálum. Þetta hefur verið gert án samþykkis Alþingis, án þjóðaratkvæðis og án þess að kjósendur hafi fengið að vita hvað er í gangi.
Samkomulag við Evrópusambandið, sem utanríkisráðherra undirritaði 21. maí 2025, felur í sér skuldbindingu um að Ísland fylgi utanríkisstefnu ESB að hluta til. Ekki ráðgefandi samstarf, heldur skuldbinding. Samkvæmt svari upplýsingaskrifstofu ESB er þetta staðfest og óumflýjanlegt. Þrátt fyrir það hefur utanríkisráðherra gefið út misvísandi yfirlýsingar í fjölmiðlum og haldið því fram að um "pólitískt samtal" sé að ræða, en ekki valdaframsal. Þetta er bein blekking.
Luktar dyr og leynd
Ekki var greint frá samningnum á Alþingi. Engin opin umræða fór fram. Engar fréttatilkynningar voru gefnar út um innihald samningsins. Fjölmiðlarnir, sem annars hamast á loftslagsmálum, kynjakvóta, Ísrael eða Donald Trump, þögðu þunnu hljóði. Þessi þögn er ekki tilviljun. Hún er afrakstur samverkandi kerfis þar sem ráðherrar, ráðuneyti og fjölmiðlakerfið virðast vinna saman að því að hylma yfir raunverulegt ástand: að Ísland er í síauknum mæli að lúta yfirstjórn erlends ríkjasambands án þess að þjóðin sé spurð.
Hvað snýst þetta í raun um?
Við erum ekki bara að tala um "utanríkismál". Við erum að tala um stefnu gagnvart Úkraínu, Ísrael, öryggis- og varnarmálum, vopnasendingum, refsiaðgerðum, orkustefnu og fleira. Við erum að tala um grundvallarstefnur sem snerta frið, stríð, siðferði og fjárframlög. Hver gaf utanríkisráðherra leyfi til að skuldbinda Ísland til að fylgja stefnu ESB gagnvart Ísrael, á sama tíma og ráðherrar ríkisstjórnarinnar taka virkan þátt í opinberri gagnrýni á Ísraelsríki í samræmi við ESB-línu?
Á sama tíma og íslensk stjórnvöld hunsa eigin varnarmál og fjársvelta Landhelgisgæsluna, samþykkja þau framlög til "sameiginlegra öryggissjóða" ESB, sem beinast að hervæðingu Evrópu. Þau verja meiri tíma í að þóknast stofnunum Evrópusambandsins en að standa vörð um lýðræðið og fólkið heima fyrir.
Ekki bara ESB heldur WHO líka
Sambærileg blekking á sér stað gagnvart Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), þar sem ríkisstjórnin hefur tekið þátt í vinnu við alþjóðasamning sem veitir WHO neyðarvald yfir heilbrigðisstefnu ríkja, þar með talið möguleika á útgöngubanni, skyldubólusetningum og ferðatakmörkunum án aðkomu þings eða okkar.
Eru þetta einangruð dæmi? Nei, þau eru birtingarmynd skipulagðs og markviss niðurbrots á lýðræðislegum grunni Íslands. Við erum að horfa upp á valdframsal í smáskömmtum, ekki bara í orði heldur í verki, þar sem æ fleiri málaflokkar eru færðir undir yfirþjóðlega stjórn með samþykki örfárra ráðamanna sem forðast þjóðina og þykjast vita betur en við sem búum á Íslandi.
Í nafni "alþjóðlegs samstarfs" er verið að klæða þetta valdframsal í fögur orð og skrautleg skjöl, en í reynd er þetta skipulögð aðgerð til að taka lýðræðið frá þjóðinni, án umræðu, án atkvæðis, án þess að nokkur beri ábyrgð.
Hvar eru fjölmiðlarnir?
Af hverju fjalla ríkismiðlar ekki um þetta? Af hverju spyr RÚV ekki ráðherra hvers vegna samkomulag við ESB var ekki kynnt þinginu? Af hverju eru ekki mótspyrnuraddir í umræðunni? Kannski vegna þess að sömu öflin sem stjórna ráðuneytunum, stjórna einnig umræðunni. Það sem áður hefði verið kallað "yfirtaka lýðræðisins" er í dag kallað "framþróun".
Síðasta aðvörunin
Ísland á að vera fullvalda ríki. Ríkisstjórn sem starfar í skjóli þagnar, undirritar skuldbindingar við erlendar stofnanir og lýgur að þjóð sinni á ekki að sitja í embætti. Þeir sem vilja innleiða stefnu ESB eða WHO eiga að koma fram, leggja það fyrir Alþingi og þjóðina, og leyfa lýðræðinu að ráða.
Við eigum rétt á því að vita hvað er verið að semja um í okkar nafni. Við eigum rétt á því að kjósa um stefnu, ekki bara eftirá, heldur áður en hún er tekin upp. Ríkisstjórn sem forðast þjóðina, hlustar ekki á fólkið. Hún þjónar öðrum en okkur, og hún verður að víkja.
![]() |
Skuldbundin að fylgja stefnu ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 29. júlí 2025
Um bloggið
Hvers vegna spyr enginn af hverju?
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.7.): 64
- Sl. sólarhring: 80
- Sl. viku: 227
- Frá upphafi: 6066
Annað
- Innlit í dag: 44
- Innlit sl. viku: 170
- Gestir í dag: 41
- IP-tölur í dag: 40
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar